Thursday, January 2, 2014

Gleðilegt nýtt ár

 

Jólatréið mitt í ár var svolítið öðruvísi en venjulega. Í gegn um árin hef ég safnað mikið af jólaskrauti sem minnir mig á Viktoríu tímabilið. Á hverju ári dáist ég af jólatréinu og finnst það fallegra en mig minnti frá árinu á undan. Ég hef oftast notað hvítar seríur en í ár aftur á móti setti ég seríu með alls konar litum og af einhverjum orsökum sé ég ekkert nema bláu ljósin. Í ár er fyrsta árið sem ég man eftir að mér finnst jólatréið ekki flott og get ekki beðið eftir því að taka það niður. Skrítið hvernig maður er.

 

 

 

 

Þar sem von var á litlu barnabarni í desember, þurfti amma auðvitað að prjóna svolítið mikið og svo meira í viðbót. Gat ekki hætt og prjónaði náttúrulega allt of mikið og allt á ungabarn.

En svo kom þessi líka myndarlega litla stelpa á gamlársdag kl 17:10 og vó hvorki meira né minna en 5080 grömm sem eru rúmar 20 merkur og var 58 cm löng. Sannkölluð áramóta sprengja hjá okkur hérna í fjölskyldunni. Svo ofan á allt saman var henni gefið nafn og þá fékk amma nöfnu. ;-)

Yndisleg lítil Abagile Soffía.

Getur árið hafa endað betur ;-) nei það held ég ekki, nema til að gera þetta enn þá fullkomnara þá fengu amman og afinn að passa hin þrjú systkynin. Fullkomið.

Bestu kveðjur

Edda Soffía

 

3 comments:

Helga said...

OMG Abby er sko bara fallegust og til hamingju enn og aftur með nöfnu :) Hún er svo heppin að eiga svo duglega Ömmu....við erum það nú öll!!! Love you

Handmade and off-centered said...

Þessi föt eru svo yndisleg og litla Abigail Soffía á eftir að njóta sín svo mikið í þeim, þó það verður ekki legni miðað við stærðina á henni ;) En hún er svo heppin að eiga svona duglega ömmu sem prjónar og prjónar og prjónar fallegar flíkur á hana :)

Jólatréið í ár var bara "öðruvísi" og það er allt í lagi. Á næsta ári verður það eins og þú manst best. Alltaf gott að prófa eitthvað nýtt.

LoveYA2pieces!

Hellen Sigurbjörg said...

Til hamingju með barnabarnið! Fötin sem þú prjónaðir eru alveg meiriháttar. Gleðilegt ár!

Related Posts with Thumbnails