Wednesday, February 29, 2012

Sitt lítið af hverju

Í dag er miðvikudagur, svo að ég fór í vinnu í dag í sól og voða fínu gluggaveðri. Ég klæddi mig að sjálfsögðu eftir veðri og fór í pils og berfætt í skónum, með svövuna mína um herðarnar. Sísí kom til mín í vinnuna og við vorum ekki alveg tilbúnar að fara heim, svo að við fórum í Geirabakarí og fengum okkur kaffi og með því. Þegar að maður fer í Geira þá er Hagkaup við hliðina á, svo að þar gátum við eitt smá pening. ;þ Þegar að við komum út þá var skollið á band brjálað veður, blind bylur og varla hægt að sjá fram fyrir sig. (og ég alltaf á sumarfötunum, berfætt í skónum) ;þ

 
Á laugardag komu Njarðvíkingarnir í heimsókn og litli prinsinn hennar ömmu kom að sjálfsögðu með. Hann var svo yndislegur og fallegur og gott að knúsa hann og kissa.

Við löbbuðum upp í menntaskóla, þar var atvinnukynning og margt sniðugt að sjá. Handavinnuhúsið var þar að sjálfsögðu og þær voru með sniðuga keppni. Við áttum allar að gera  og koma með púða, sem svo allir áttu að velja flottasta púðann. Þetta var hörð keppni en flottasti púðinn kom svo frá mér. ;þ

Þessi uppskrift er frá henni Lucy í Attic24 og þar er hún búin að skrifa og taka myndir af ferlinu, hvernig á að hekla hann. Garnið sem að ég notaði er frá Handprjón.is og er þessi litur víst kallaður Gaypride. Það er alveg ótrúlega gaman að hekla úr þessu garni og konurnar í félagsstarfinu eru að prjóna mikið úr því líka.


Eftir nokkur ár með ofnæmi sem ég að sjálfsögðu vissi ekkert fyrir hverju, er ég loksins búin að komast að því að ég er með ofnæmi fyrir lopa, hafið þið heyrt annað eins. :( En það þýðir ekkert að væla og svo á ég góðar vinkonur sem hægt er að díla við. ;þ Einni vantaði bók frá Amazon og ég keypti hana og hún prjónaði Nínu tösku fyrir mig í staðinn. Þessi er dökk græn og bleik og kemur ágætlega út. Ég er ekki alveg sátt en hlít að geta hresst upp á hana með einhverju móti.


Þetta er sjal eða trefill sem er kallaður Wing span, ég fékk uppskriftina á netinu í gegnum Wendy knits sem er hér til hliðar. Það er voða gaman að prjóna þetta sjal og garnið er skemmtilegt í allskonar bláum litum. Ég hef ekki verið hrifin af bláum lit hingað til en er að reyna að sættast við hann. Þetta er nú bara nokkuð fallegt, en ég ætla nú sammt að gefa mömmu minni þetta. ;þ



Ég ætla ég að láta fylgja nokkrar myndir frá prjónakaffinu okkar hér í Borgarnesi, sem er öll þriðjudagskvöld frá kl 20 til 22.

Hér sjást Sísí, Hulda og Rasa

Júlíanna, Gunna, Svava í Görðum, Steinka og Margrét Ástrós

Maja (Mæja) Hulda mamma Huldu og Sísí



Friday, February 3, 2012

Það er kominn lítill prins

Núna í desember vorum við konurnar að prjóna prinsateppi og það átti að vera búið einhvern tíman í mars. Ég átti nú von á litlum prins í mitt teppi í byrjun febrúar, svo að ég varð að prjóna aðeins hraðar. Þegar að ég var svo rétt búin með teppið,  þá gerði hann sig líklegan til að koma í heiminn. Á föstudaginn var 27. janúar 2012 kom hann svo með stæl, það munaði bara mínútum að hann kæmi í sjúkrabílnum. ;þ

Amma átti að fá að vera viðstödd fæðinguna, en þar sem amma á heima í Borgarnesi og litli prins á suðurnesjum og hann var að flýta sér svona mikið (2 tímar frá því að verkirnir komu þar til hann var kominn í heiminn) þá náði amma ekki. En það er nú allt í lagi því að allt gekk vel og amma var komin stuttu seinna og fékk að sjá hann alveg nýjan.

Fallegi litli prinsinn hennar ömmu sinnar.

Monday, January 23, 2012

Janúar

Gunnar minn átti stórafmæli 6. janúar og við fórum á Akureyri frá fimmtudegi til mánudags. Á afmælisdaginn sjálfan fórum við til manns sem heitir Siggi og hann fór með okkur á snjósleða, sem var náttúrulega bara æði og Gunnar minn elskar.

Ég prjónaði peysu á hann sem tók óra tíma að prjóna svona í felum. ;Ð En svo þegar að ég ætlaði að sýna ykkur hana þá fatta ég að það var engin mynd tekin af henni. Það er allt í lagi því að ég sýni ykkur hana bara seinna. Þessi steinn sem að ég gaf honum líka er allur málaður með húsdýrunum, sem að er viðeigandi þegar að eigandinn er dýralæknir.



Þetta er svo annar steinn sem að ég stóðst ekki og keypti líka, hann er mikið minni og passar ágætlega í eldhúsgluggann minn.

Allar hliðar á steininum.;Ð


Þetta er ég að prófa að hakla úr sprengdu garni sem er í svo flottum litum. Þetta er púði sem að Bellan mín gæti notað á rúmið sitt. Uppskriftina fékk ég hjá Lucy í Attic24.

Hún á líka þessa uppskrift, sem að ég var að prófa. Þið ættuð að kíkja á hana, hún er alveg frábær og gerir uppskriftir líka.

Þetta er svo peysa sem að ég er að prjóna á sjálfa mig. Hún er öll út í munstri sem að er ferlega gaman að prjóna. Ég er að prjóna hana úr Dala Falk á prjóna nr 4. en þeir gefa upp nr. 4 1/2. 

Nærmynd af munstrinu.

Þetta er ermin af peysunni hans Gunnars sem að ég gaf honum í afmælisgjöf. Hún er frá Anette Danielsen. (veit ekki hvort að þetta er rétt skrifað) Frábær peysa og gaman að prjóna hana, en rosalega mikið verk.

Bestu kveðjur úr Borgarnesi
Edda Soffía

Saturday, December 31, 2011



Guð gefi ykkur 
Gleðilegt nýtt ár 
og takk fyrir allt liðið.


kveðja úr Borgarnesi
Edda Soffía

Friday, December 23, 2011

Gleðileg jól



Ég óska öllum gleðilegra jóla og vona að friður og gleði fylgi ykkur yfir hátíðarnar.

Birgitta mín og hennar fjölskylda eru að koma til okkar og ætla að eyða hjá okkur aðfangadegi og svo verður farið til Ölmu systir á jóladag. Við Gunnar erum að mestu ein þessi jól því að litlu stelpurnar mínar eru hjá pabba sínum í Ameríku. En við höfum nú alltaf litlurnar hans og því erum við ekki alltaf ein, við skiptumst á við mömmu þeirra.

Ég má til með að segja ykkur klaufalega sögu. Þannig er mál með vexti að nýja saumavélin mín bilaði og hún hefur því verið á verkstæðinu í langan tíma ( það finnst mér að minnst kosti) ´Eg var sem sagt ekki alveg búin með jólagjafirnar þegar að hún bilaði. 

Í gær fór ég svo að ná í vélina og byrjaði auðvitað strax að sauma, í morgun fór ég svo niður þegar að ég vaknaði og ætlaði að gera síðustu gjöfina, nefnilega sængurver fyrir Birgittu mína og hennar mann. Þau eru með stóra sæng og því gerði ég fjölskyldu nafnið þeirra í mitt verið. allt gekk svo vel og stafirnir voru þrílitir og voða flottir, ég tók þetta upp og fór að brjóta sængurverið saman og tók þá eftir því að ég snéri Warren nafninu ÖFUGT. Hafið þið vitað annað eins. :( 
Klaufi sem ég get verið.


Bestu jólakveðjur
Edda Soffía 

Friday, December 2, 2011

Litla kisa og saumaskapur

Hérna er litla kisa að láta fara vel úm sig í Giðingnum gangandi, einhver misskilningur hér á ferð. Hún var allveg viss um að við hefðum sett og ræktað þetta blóm fyrir sig. ;þ En svona uppdeit á blólmið, þá er það farið, ég henti því og þá þarf ekkert að hafa áhyggjur af því. ;þ Kisa alltaf jafn mikið krútt.


Þetta eru handklæði sem að ég er búin að vera að gera á nýju saumavélina mína og trúið þið mér þetta er bara smá partur af öllum staflanum á borðinu hjá mér. ;þ Ég held að ég sé búin að gera einhver 20 handklæði fyrir utan allt hitt, en þetta er 
SVOOOOO gaman. ;Þ

Á miðvikudögum hittumst við vinkonurnar í Svuntunum og saumum bútasaum. Þetta átti auðvitað ekki að vera í hverri viku en svona endaði þetta, ja allavegana fyrir jólin, því að þá er svo margt fallegt hægt að gera og við alltaf með eitthvað sniðugt sem einhverri af okkur hefur dottið í hug. Í gær kom t.d. Maja með þetta pottaleppa snið og ég vann við þetta í allt gærkvöld (og gat ekki klárað) en ætla að vera í skúrnum mínum í dag til að klára. Þeir eru svo sætir þegar að þeir eru búnir.  ;Þ

Bestu kveðjur úr Borgarnesi
Edda Soffía

Wednesday, November 16, 2011

Ég er hérna ennþá ;þ


Um daginn var ég að suma eitthvað fallegt á gömlu sumavélina mína (sem er ekkert gömul) þá birtist allt í einu nýji meðlimur fjölskyldunnar og þurfti smá athygli.

Ég mátti til að taka mynd af litlu kisu, þar sem hún stillti sér upp fyrir framan saumavélina og fannst alveg að ég gæti talað við hana eins og að vera að sauma. ;Ð En svo var ég ekkert spennandi lengur þegar að ég var komin með myndavélina og ekkert hreifðist lengur, svo að hún fór bara að horfa út um gluggan. Litla kisa kom til okkar þegar að maðurinn minn átti að aflífa hana en við féllum alveg fyrir henni og björguðum henni. Hún á að heita Björg, en af einhverri ástæðu festist það nafn ekki við hana og því er hún alltaf kölluð litla kisa. Hún er allveg frábær, kelin og góð og svo malar hún svo hátt að ég kalla hana stundum Malla litla. ;þ

Nú er ég semsagt búin að fá nýja útsaumsvél sem er náttúrulega allveg frábær. Ég er búin að vera að æfa mig á öllum útsaumnum og læra á hana alla daga, en á langt í land að vera orðin góð. Ég ætla að setja inn mynd af einhverju sem að ég er búin að vera að æfa mig á fljótlega svo að þið getið séð hvað gripurinn getur gert. ;þ
Bestu kveðjur úr Borgarnesi
Edda Soffía

Related Posts with Thumbnails