Saturday, February 20, 2010



Jæja nú er ég hjá Helgu minni í Chicago og fer heim á mánudaginn. Þetta er búið að líða allt of hratt og ég trúi ekki að tvær vikur séu að verða búnar.



Við erum búnar að vera að sauma gardínur fyrir eldhúsið hennar, hún er með tvo glugga einn er lítill og hinn svolítið stærri. Hún vildi grænar gardínur og valdi tvo græna liti sem pössuðu vel saman. Við erum voða ánægðar með þær og finnst þær hafa heppnast vel.



Þessa mynd varð ég að setja inn því að hún Maja mín er svo sniðugur (og óþekkur) hundur, hérna er hún komin undir rúmteppið á hjónarúminu. Svona komum við að henni þar sem hún var búin að koma sér vel fyrir og var steinsofandi. Svo hrítur hún Maja mín svo mikið að það er ekki hægt að sofa í sama herbergi og hún. :o)

Litlu strákarnir mínir eru búnir að vera yndislegir og ég fæ ekki nóg af því að vera með þeim. Ég ætla nú samt ekki að setja myndir af þeim hérna núna en geri það eftir að ég kem heim.

Wednesday, February 3, 2010

Eitt af því sem ég ætla að gera fyrir vorið er að klára nokkur ókláruð verkefni sem ég á. Ég byrjaði á þessari peysu síðasta vetur, þetta er febrúarpeysan. Hún er prjónuð úr létt lopa og ég er ekki neitt svakalega hrifin af hvernig hún kemur út. Ég hef samt ákveðið að klára hana og gefa einhverjum hana. Hún gæti lagast ef að ég set fallegar og áberandi tölur á hana.


Þetta teppi byrjaði ég á í haust en varð svo að fara í jólagjafirnar og vinnuna svo að ég ákvað að gera þetta fyrir sumarið í fellihýsið okkar. Þetta er voða fallegt stjörnu mynstur og ég ætla að hafa það í sex eða sjö brúnum litum, ég nota tvöfaldan plötulopa í teppið. Í sumar gerði ég svona alveg eins nema það varð of lítið, en er í fellihýsinu okkar.


Svo er það nú auðvitað græni toppurinn minn sem ég hef gripið í annað slagið þó að ég sé búin að vera í vettlingum og sokkum upp fyrir haus. ;o)

Þar til næst
Kv Soffía frænka
Related Posts with Thumbnails