Monday, September 28, 2009

Handavinna

Nú ætla ég að setja inn nokkrar myndir af handavinnu sem að ég er búin að vera að gera undanfarið.



Ég var að nota afganga af léttlopa sem að ég á svo mikið af og gerði nokkur sokkapör á litlar fætur.



Svo eru það leikskólakrakkarnir, þeir þurfa alltaf svo mikið af sokkum og vettlingum.



Þetta er vesti sem að ég var að enda við að gera og ætla að selja. Það er úr tvöföldum lopa og græni liturinn er þessi cintarmani litur sem kom óvart í verslanirnar í firra.




Þetta er kjóll sem að ég gerði á Karlottu úr einföldum lopa og kitty garni hún valdi litina og munstrið og er hæstánægð með mömmu sína.

Tuesday, September 22, 2009





Jæja nú er nú kominn tími til að ég fari að blogga aftur og nú verður það um handavinnuna mína.
Ég er búin að vera alveg rosalega dugleg í handavinnunni í sumar og ætla að láta nokkrar myndir fylgja með að ganni.

Sunday, May 24, 2009




Hérna eru stelpurnar mínar á Íslandsmeistaramótinu fyrsta eða önnur helgin í maí 2009. Amelia og Stefnir voru í 3 sæti í Ballroom og Karlotta og Styrmir voru í 4 sæti í Latín.



Þetta er vesti sem ég var að gera handa Ísabellunni minni. Ég prjónaði ekki slaufurnar á, heldur saumaði ég bara slaufur úr borða sem stelpurnar fengu frá Sharla með namminu. Það kom nú bara mjög vel út, alla vegana varð Bellan mín voða ánægð með ömmu sína og vildi nota tækifærið og biðja mig um að prjóna líka kjól sem átti að vera svartur með bleiku munstri. Nú amma gat ekki annað en prjónað hann líka og þá kom annað vandamál upp. Diamond vantaði drekapeysu í stíl við húfuna sem amma gerði og hún á að vera með vængjum... hummm nú verður amma að fara að hanna svoleiðis peysu. :o) Alltaf nóg að gera hjá ömmum sem prjóna (sem betur fer).

Tuesday, May 19, 2009

Hérna er kort sem að ég gerði fyrir sextugs afmæli um daginn. Ég er bara nokkuð ánægð með þetta, við gerðum þetta saman ég og Gunnar. Hann gerði ljóðið en ég saumaði og skrifaði.



Sunday, February 1, 2009

Sunnudagur



Jæja nú er komin helgi og við bara að slappa af hérna heima og stelpurnar eru búnar að vera að horfa á Húsið á sléttuni alla helgina. Ég er búin að prjóna vesti á Diamond og sendi Árna með það til Birgittu núna áðan. Svo er ég nú líka búin að uppgörta prjónasíðu á netinu og þar eru fullt af hugmyndum. Þar sá ´ég litla prjónaða skó sem að ég varð auðvitað að prófa og þeir eru æðislega fínir (heppni að Fjóla á að eiga barn núna í febrúar). Annars er ég búin að vera að reyna að manna mig upp í að prjóna eitthvað á litla barnið til þess að stelpurnar geti gefið þeim. Barnið kemur ekki fyrr en 23, feb. svo að ég hef ennþá tíma. Svo er það auðvitað vinnan mín, ég verð að finna upp á einhverju til að sína dömunum mínum og þá helst eitthvað fyrir páskana. Ég er búin að finna perluunga og egg sem að ég sýni þeim þegar að ég er búin að gera það. Set kanski mynd af því hérna ef að það klárast. Annars gerði ég hring á kertastjaka handa okkur Birgittu og það heppnaðist nokkuð vel, finnst mér allavegana. Hérna eru myndir af því, bara að gamni.

Thursday, January 29, 2009

Nýju eldhúsgardínurnar mínar




























Nú er ég ekkert búin að hafa tíma til að blogga, því að ég er búin að vera að hekla gardínur fyrir eldhúsgluggann minn. Þetta er búið að taka mig svona mánuð, því að ég byrjaði um jólin og er búin að hjakka á þessu síðan. En þetta hefur verið draumur hjá mér í mörg á (ég held síðan Birgitta mín var lítil eða ekki fædd). Og ég segi þá bara LOKSINS.
Related Posts with Thumbnails