Friday, October 15, 2010

Jólavestin á strákana


Mér datt nú svona í hug að þið hefðuð gaman af því að sjá útsýnið hjá mér hérna í Þórðargötunni. Ég fór út á svalir og tók þessa mynd , en ég sé þetta líka út um stofugluggan minn. Ótrúlega flott útsýni hérna.



Nú er ég að gera vesti handa litlu körlunum hjá mér fyrir jólin. Ég hef ákveðið að þrír minnstu mennirnir verði í rauðu vesti um jólin. ;þ Mömmurnar samþykktu það sem betur fer. hjúkk... Jæja en nú er Kobes búið og Diamonds næstum búið og ekki til meira rautt Dalagarn í Borgarnesi, svo að ég verð að bíða með Birkis vesti þar til í næstu viku eða svo.

1 comment:

Handmade and off-centered said...

Úúúúíííí þetta er ekkert smá flott vesti handa litlu gæjunum okkar :) Elska rauða litin og kaðla munstrið er svo klassíst :)

Þú þarft bráðum bara að fara opna þína eigin kósý handavinnu búð...þú veist að það er næst á listanum "of Things too do" hehehehehehe

Related Posts with Thumbnails